Prentstofa JHG
Reykjavík 1938-1939
Jón Helgi Guðmundsson (1906-1952) prentari stofnaði prentsmiðju 1938 og nefndi hana Prentstofu JHG. Hann starfrækti hana í um það bil eitt ár. Vann síðan nokkra mánuði í Steindórsprenti en gerðist þá ritstjóri Vikunnar og gegndi því starfi til dánardægurs.